Trackman io

https://www.golfhermir.is/web/image/product.template/44/image_1920?unique=d5dedac

## Trackman iO

Trackman iO er loftfestur launch monitor hannaður sérstaklega fyrir innanhús aðstöður. Hann hentar vel fyrir þá sem vilja snyrtilega og fasta uppsetningu þar sem ekkert tæki þarf að standa á gólfinu eða fyrir aftan boltann.

Kerfið notar radar, infrared og high-speed myndavélar til að mæla bolta- og kylfugögn í rauntíma. Þar sem tækið er fest í loftið helst rýmið opið og einfalt í notkun, sem gerir Trackman iO mjög hentugan fyrir heimili, bílskúra, kjallara, fyrirtæki, golfkennslu og hermasali.

### Hvað gerir Trackman iO sérstakan?

Trackman iO er byggður fyrir innanhússgolf. Hann mælir höggið með blöndu af radar, infrared og high-speed myndavélum og skilar nákvæmum upplýsingum um boltaflug, snúning og kylfuhreyfingu.


Trackman iO mælir meðal annars:

Ball Speed
Launch Angle
Launch Direction
Spin Rate
Spin Axis
Hang Time
Height
Curve
Landing Angle
Carry
Side
Total
Side Total
Smash Factor

Í Home útgáfunni er einnig innifalið:

Club Speed

Í Home Complete og Commercial opnast ítarlegri club data, þar á meðal:

Club Speed
Face Angle
Club Path
Face to Path
Impact Height
Impact Offset
Dynamic Loft
Spin Loft
Attack Angle

Þetta gerir Trackman iO ekki bara góðan golfhermi til að spila velli, heldur líka öflugt æfingatæki fyrir þá sem vilja skilja betur hvað er að gerast í högginu.

### Helstu kostir

* Loftfestur launch monitor sem tekur ekkert gólfpláss
* Hannaður sérstaklega fyrir innanhúss golfherma
* Mælir bæði bolta- og kylfugögn
* Radar, infrared og high-speed myndavélar í einu kerfi
* Engin þörf á tæki fyrir aftan boltann
* Hrein og snyrtileg uppsetning
* Hentar vel þar sem dýpt rýmis er takmörkuð
* Trackman hugbúnaður fyrir æfingar, golfvelli, leiki og mót

### Munurinn á Trackman iO Home, Home Complete og Commercial

Trackman iO er fáanlegur í þremur mismunandi útgáfum eftir því hversu mikið þú vilt fá út úr kerfinu og hvort það sé notað heima eða í rekstri.

**Trackman iO Home** er grunnútgáfan fyrir heimili. Hún inniheldur 15 data parameters og hentar vel fyrir þá sem vilja æfa, spila og fá áreiðanleg gögn um boltann og helstu niðurstöður höggsins. Home útgáfan inniheldur valið safn af völlum og leikjum og er góður kostur fyrir heimagolfara sem vilja byrja á sterkri Trackman lausn með möguleika á uppfærslu síðar.

**Trackman iO Home Complete** er fullkomnari heimalausn með 23 data parameters. Þar opnast ítarlegri kylfugögn eins og club path, face angle, face to path, attack angle og dynamic loft. Home Complete hentar þeim sem vilja nota herminn markvisst til æfinga, bera saman högg, vinna með sveifluna og fá meiri upplýsingar um hvað kylfan er að gera í gegnum höggið. Þessi útgáfa veitir einnig aðgang að öllum völlum og leikjum sem fylgja Trackman kerfinu samkvæmt þeirri hugbúnaðarleið.

**Trackman iO Commercial** er ætluð fyrir atvinnunotkun, til dæmis golfhermasali, golfklúbba, kennsluaðstöðu og fyrirtæki. Hún byggir á fullri gagnagreiningu og víðtækum hugbúnaðaraðgangi, en er leyfislega hugsuð fyrir rekstur þar sem margir notendur koma í gegnum kerfið eða þar sem seldir eru tímar, kennsla eða golfupplifun.



### Rými og uppsetning

Einn helsti kosturinn við Trackman iO er að hann þarf ekki að standa fyrir aftan boltann. Það getur skipt miklu máli í rýmum þar sem dýptin er takmörkuð eða þar sem markmiðið er að hafa uppsetninguna eins hreina og snyrtilega og hægt er.

Við bjóðum uppá að mæta á staðinn og skoða rýmið áður en endanleg lausn er valin. Það þarf meðal annars að huga að lofthæð, breidd, dýpt, staðsetningu höggmottu, skjás, skjávarpa og því hvort uppsetningin eigi að vera tímabundin eða innbyggð.

### Hvað þarf með Trackman iO?

Til að setja upp fullbúinn golfhermi með Trackman iO þarf yfirleitt einnig höggmottu, höggtjald, skjávarpa, tölvu, festingar, kapla og viðeigandi frágang í rýminu. Við getum sett saman lausn út frá því hvort markmiðið sé einfalt æfingarými eða fullkominn innbyggður golfhermir.

### Er Trackman iO rétti kosturinn fyrir þig?

Trackman iO er mjög sterkur kostur ef þú vilt fá Trackman gæði í fastri, loftfestri og plásssparandi innanhússuppsetningu. Hann hentar sérstaklega vel fyrir þá sem vilja æfa og spila golf allt árið, fylgjast með framförum og fá golfhermi sem lítur vel út og er einfaldur í daglegri notkun.

Ef þú ert ekki viss hvort Home, Home Complete eða Commercial henti betur getum við hjálpað þér að velja rétta útgáfu miðað við rými, notkun, markmið og budget.

2.349.000 kr 2349000.0 ISK 2.349.000 kr

Hafið samband til að versla

    Þessi samsetning er ekki til.

    Trackman